Þessi byltingarkennda formúla inniheldur aðeins 12 hrein og virk efni sem voru sérvalin af vísindateyminu okkar. Þessir kraftmiklu húðdropar vinna á þurrki, litamisfellum, hrukkum, húðþynningu og slappri húð, á sama tíma og þeir hafa eflandi áhrif á ysta varnarlag húðarinnar. Þessi framsækna formúla inniheldur lykilinnihaldsefnið okkar, EGF (Epidermal Growth Factor) úr byggi, KGF (Keratinocyte Growth Factor) úr byggi, NAG (N-Acetyl Glucosamine) og hýalúronsýru.
Þessi sérvöldu efni vinna saman á skilvirkan hátt og samlegðaráhrif þeirra tryggja virkni og árangur. EGP Power Serum henta því sérstaklega vel þurri og þroskaðri húð. EGF Power Serum hjálpar einnig til við að draga úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar sem sýnilega bætir áferð húðar og jafnar húðlit. EGF Power Serum er án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens og hentar öllum húðgerðum.