Beint í efni

Sex ráð fyrir heilbrigða húð í sumar!

Með hækkandi sól byrjar húð okkar að upplifa breytingar sem eru ekki alltaf til bóta. Með meiri hita og raka í loftinu, byrjar hún að kalla eftir meiri athygli, ást og alúð.

Því er mikilvægt að sinna húðinni vel og við hjá BIOEFFECT erum búin að taka saman nokkur ráð sem gætu hjálpað ykkur að viðhalda heilbrigði húðarinnar.

Hreinsaðu húðina.

Við þurfum alltaf að þrífa húð okkar, kvölds og morgna, sama hvort við höfum notað farða eða ekki. Það að hreinsa húðina tekur óhreinindi og fleira úr húðholunum og minnkar líkurnar á að þær stíflist. Þar auki undirbýr hreinsunin húðina fyrir þær húðvörur sem þú ert að fara að nota.

Við mælum með: Facial Cleanser og Micellar Cleansing Water.

Skrúbba.

Húðhreinsun með kornahreinsi fjarlægir dauðar húðfrumur og undirbýr húðina fyrir húðvörur á borð við serum og rakakrem.

Við mælum með: Volcanic Exfoliator.

Viðhaltu raka húðarinnar.

Settu aukinn kraft í húðrútínuna þína með því að nota ekki aðeins rakakrem, heldur einnig maska til að hækka rakastig húðarinnar. Maskar virka vel þegar þú parar þá saman með rakakremi eða serumi. Svo er hægt að veita húðinni skjótan raka á ferðinni með frískandi rakaspreyi.

Við mælum með: EGF for Face and Body, EGF Day Serum og OSA Water Mist.

Vatn er besti vinur þinn.

Því hlýrra sem það verður, því meiri raka missir þú úr líkama þínum dags daglega, sem getur leitt til höfuðverkja, svima og sjáanlegra ummerkja um þurrk í líkama. Þumalputta reglan er að þú eigir að drekka átta 250 ml glös af vatni á dag til að sporna gegn ofþornun og til að viðhalda heilbrigðu rakastigi húðar og líkama.

Verndaðu þig frá sólinni.

Segðu það með mér; SPF, SPF og SPF. SPF er hinn besti vinur þinn og ætti alltaf að vera með í för þegar þú ert utandyra á sumrin, meira að segja þegar það er skýjað (já, UVA geislar geta brennt þig í gegnum skýin)! Sérfræðingar mæla með u.þ.b. teskeið af sólarvörn á andlitið, og því sem samsvarar skotglasi á líkamann og þú ættir að endurbera sólarvörn á 2 klst fresti.

Gerðu við (eins mikið og hægt er) sólarskaða.

UV geislar valda sjáanlegum skaða eins og litabreytingum, þurrki og hrukkum, hvort sem að þú hefur brunnið eða ekki. Sólin getur haft mörg neikvæð áhrif á húðina (því miður), hún skerðir varnir húðarinnar, veldur bólgum, skerðir súrefnisinntöku húðar sem er það sem stuðlar að heilbrigðri frumuframleiðslu og hjálpar einnig við framleiðslu kollagens.

Við mælum með: EGF Power Serum, EGF Power Cream and 30 Day Treatment.

Í stuttu máli þá eru þarfir húðarinnar aðrar á sumrin en veturna. Því meiri tíma sem þú ert í sól því meiri þörf fyrir sólarvörn. Best er að finna sólarvörn yfir 30 SPF og bera hana á 2 klukkustunda fresti til að verja húðina fyrir ótímabærri öldrun og húðkrabbameini. Notaðu létt rakakrem eða serum, ekki nota þungan farða og skrúbbaðu húðina aðeins 1 sinni á viku. Ef þig langar í heilbrigðan ljóma er hægt að nota dagkrem með smá lit, sólarpúður eða sjálfsbrúnkukrem. Ef þú ferðast til mjög heitra og sólríkra landa er líka gott að verja húðina með flíkum, léttum hörskyrtum eða sjölum. Síðast en ekki sísts, mun sumarvæn og létt húðrútína gera húð þín hamingjusama.

Hleð inn síðu...