Beint í efni

Hydrating Cream + gjöf

Nærandi andlitskrem með glæsilegum kaupauka. Kaupaukinn inniheldur BIOEFFECT varasalvann ásamt fallegum gjafapoka unnum í samstarfi við listakonuna Þórdísi Erlu Zoëga. Hydrating Cream veitir húðinni fullkominn raka sem endist allan daginn. Þetta einstaklega létta og nærandi rakakrem er búið til úr hreinum efnum á borð við íslenskt vatn, hýalúronsýru og E-vítamín. Það eykur raka og skilur við húðina slétta og mjúka.

12.990 kr.

Eiginleikar og áhrif

Vörur:

Hydrating Cream: Nærandi andlitskrem með tæru, íslensku vatn sem veitir húðinni langvarandi raka. Þetta einstaklega létta rakakrem er búið til úr hreinum efnum á borð við íslenskt vatn, hýalúronsýru og E-vítamín. Það eykur raka og skilur við húðina slétta og mjúka.

Eykur rakastig húðarinnar um allt að 57%, eftir aðeins sólarhringsnotkun*

  • Létt og olíulaus formúla sem gengur hratt inn í húðina
  • Verndandi andoxunarefni
  • Skilur við húðina mjúka, þétta, slétta og geislandi
  • Má nota eitt og sér eða ásamt BIOEFFECT serumum
  • Aðeins 16 hrein innihaldsefni
  • Hentar öllum húðgerðum, sér í lagi olíukenndri húð
  • Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 50 ml

*Skv. sjálfstæðri, tvíblindri 20 þátttakenda rannsókn á vegum BIOEFFECT.

Varasalvi: BIOEFFECT varasalvinn er fullur af náttúrulegum og nærandi innihaldsefnum. Varasalvinn er rakagefandi og hjálpar til við að halda vörunum vel nærðum, mjúkum og fallegum.

Stærð: 3.2 g.

Gjafapoki: Fallegur gjafapoki unnin í samstarfi við listakonuna Þórdísi Erlu Zoëga. Pokanum fylgir grænn BIOEFFECT borði til að loka honum á handhægan hátt.

Mál vöru: 20.5 x 10.5 x 20.5 cm

Lykilinnihaldsefni

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

E-vítamín: Eitt þekktasta og áhrifamesta andoxunarefnið fyrir bæði líkama og húð. Það fyrirfinnst náttúrulega í húðinni en dregið getur úr magni þess vegna þeirra umhverfisáhrifa sem húðin verður fyrir (t.d. þegar sólarvörn er ekki notuð). E-vítamín verndar húðina fyrir umhverfisáhrifum og skaðlegum áhrifum sindurefna auk þess að jafna áferð og húðlit.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Innihaldsefnalisti:

Hydrating Cream: WATER (AQUA), CAPRYLIC/CAPRIC TRIGLYCERIDE, BUTYLENE GLYCOL, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, CETYL ALCOHOL, DL-ALPHA TOCOPHEROL, PHENOXYETHANOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN, CARBOMER, SORBITAN OLEATE, POTASSIUM SORBATE, POTASSIUM HYDROXIDE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Lip Balm: OCTYLDODECANOL, HELIANTHUS ANNUUS (SUNFLOWER) SEED WAX, SIMMONDSIA CHINENSIS (JOJOBA) SEED OIL, PERSEA GRATISSIMA (AVOCADO) OIL, WATER, TRIOLEIN, C10-18 TRIGLYCERIDES, COCOS NUCIFERA (COCONUT) OIL, POLYGLYCERYL-3 POLYRICINOLEATE, GLYCERYL DIOLEATE, CETYL ALCOHOL, TRIPELARGONIN, POLYGLYCERYL-3 OLEATE, SYNTHETIC WAX, PHENOXYETHANOL, GLYCERIN, SORBITOL, SODIUM HYALURONATE, ETHYLHEXYLGLYCERIN

Upplýsingar

BIOEFFECT® HYDRATING CREAM

BIOEFFECT® Hydrating Cream er afar nærandi og rakagefandi krem sem gerir húðina mjúka, slétta og ljómandi.

  • Veitir húðinni raka og næringu
  • Eykur ljóma
  • Hentar vel til notkunar yfir BIOEFFECT serum

Notkunarleiðbeiningar: Berið á hreina húð á andliti og á hálsi, nuddið með léttum strokum upp á við.

BIOEFFECT Hydrating Cream hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT Hydrating Cream.

Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni.
Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

BIOEFFECT® LIP BALM

BIOEFFECT® varasalvi er rakagefandi varasalvi sem nærir og mýkir varirnar.

  • Veitir langvarandi raka
  • Nærir og mýkir varirnar
  • Kemur í veg fyrir þurrar og sprungnar varir

Notkunarleiðbeiningar

Berist á varir eftir þörfum.

Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.

Hreinar húðvörur

Notkun

Hydrating Cream: Berið á andlit, háls og bringu. Nuddið upp á við með mjúkum strokum. Frábær viðbót við reglubundna húðumhirðu. Kremið má nota eitt og sér eða ásamt öðrum vörum frá BIOEFFECT til að auka næringu, raka og virkni enn frekar.

Varasalvi: Berist á varir eftir þörfum.

Hleð inn síðu...