Beint í efni

EGF Power Cream & Eye Cream

Þessi öfluga tvenna veitir árangursríka hjálp gegn öldrun húðarinnar.

EGF Power andlitskrem er silkimjúkt og djúpnærandi andlitskrem sem vinnur gegn fimm helstu öldrunareinkennum húðar: fínum línum og hrukkum, öldrunarblettum, slappleika, húðþynningu og þurrki. Kremið er þróað með áhrifamikilli blöndu af virkum innihaldsefnum sem vinna saman að heilbrigði húðarinnar.

Nýja EGF Power Eye augnkremið vinnur á margvíslegum öldrunareinkennum á viðkvæmu húðinni undir og í kringum augun. Þetta byltingarkennda augnkrem dregur sýnilega úr fínum línum og hrukkum, og veitir um leið áhrifaríka vörn gegn dökkum baugum, bólgum og þurrki.

Nú býðst þessi öfluga EGF Power tvenna á 15% lægra verði.

Fullt verð: 37.480 kr.
Þitt verð: 31.858 kr.

37.480 kr.31.858 kr.

Eiginleikar og áhrif

EGF Power Eye Cream er sérstaklega þróað til að minnka ásýnd fínna lína og hrukka, bauga, þrota og þurrks á augnsvæðinu. EGF Power Eye Cream er öflug blanda sex virkra innihaldsefna og er sérstaklega þróuð fyrir þroskaða húð og til að veita sýnilegan árangur. Kremið veitir djúpan og langvarandi raka, þéttir og sléttir augnsvæðið.

EGF Power Cream er byltingarkennt andlitskrem. Það er bæði kraftmikið og djúpvirkandi, vinnur á hrukkum og fínum línum, jafnar húðlit, áferð og eykur þéttleika húðarinnar. EGF Power Cream inniheldur úrval virkra og sérvalinna innihaldsefna og er sérstaklega þróað fyrir þroskaða húð.

EGF Power Eye Cream

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Eykur þéttleika og húðin virðist stinnari
  • Dregur úr baugum, þrota, þreytumerkjum og slappleika
  • Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
  • Eykur rakabindingu
  • Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikon-efna og glútens
  • Prófað af húð- og augnlæknum

Stærð: 15 ml.

EGF Power Cream

  • Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
  • Þéttir húðina, húðin virðist stinnari
  • Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum
  • Sléttir húðina og jafnar húðlit
  • Dregur úr ásýnd svitahola
  • Hentar öllum húðgerðum, þó sérstaklega eldri húð og þurri húð
  • Aðeins 23 innihaldsefni
  • Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens.
  • Prófað af húðlæknum

Stærð: 50 ml.

Lykilinnihaldsefni

EGF: Öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðarinnar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur. EGF hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnka hrukkur og fínar línur, þéttir og sléttir húðina. BIOEFFECT EGF er eftirgerð af vaxtarþættinum EGF sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. BIOEFFECT EGF er framleitt með aðferðum plöntu-líftækni og ræktað í byggi í gróðurhúsi á Íslandi.

Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.

Koffín: Dregur úr þrota og baugum á meðan það bætir smáæðablóðrásina og nærir augnsvæðið. Býr yfir andoxunarvirkni sem hjálpar til við að vernda húðina fyrir UV-geislum og skemmdum.

Bakúsíól: Náttúrulegt innihaldsefni sem býr yfir sambærilegri virkni og retínól. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka og jafnar húðlit og áferð án þess að erta húðina.

Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.

Seramíð: Eykur raka í húðinni svo hún verður þéttari ásýndar. Seramíð hjálpar til við að lágmarka þrota og að baugar myndist með því að endurheimta raka og þéttleika augnsvæðisins.

Bygg ekstrakt (Barley seed extract): Öflugt innihaldsefni ríkt af peptíðum og andoxunarefnum. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka.

Betaglúkan úr byggi: Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að betaglúkan sem framleitt er úr byggi getur myndað allt að þrisvar sinnum öflugri andoxunarvörn en betaglúkan sem framleitt er úr höfrum.

Órídónín: Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur auk þess gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.

Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.

Squalane: Endurnærandi og rakagefandi andoxunarefni. Það vinnur hér með fitusýrunum í kvöldvorrósarolíu og sheasmjöri. Saman stuðla efnin að næringu og raka og mýkja húðina án þess að skilja eftir klístrað lag á yfirborði hennar, sem er sérstaklega hentugt fyri eldri húð eða þurra húð.

Innihaldsefnalisti

EGF Power Eye Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

EGF Power Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, BUTYLENE GLYCOL, ONEOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, CETYL ALCOHOL, SQUALANE, SORBITOL, HYDROGENATED POLYISOBUTENE, NIACINAMIDE, TOCOPHEROL, SODIUM HYALURONATE, BETA GLUCAN, ORIDONIN, PHENOXYETHANOL, SORBITAN OLEATE, CARBOMER, XANTHAN GUM, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, POTASSIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)

Hreinar húðvörur

Notkun

Skref 1: Berðu EGF Power augnkremið á með því að dreifa því mjúklega með fingurgómunum á svæðið undir augum. Byrjaðu við augnkrók, haltu áfram undir auganu og upp á augnlokin þar til húðin er þurr viðkomu.

Skref 2: Berðu næst EGF Power andlitskremið á andlit, háls og bringu. Berðu kremið mjúklega á með léttum, hringlaga hreyfingum. Bíddu í 3-5 mínútur áður en farði eða sólarvörn er sett á.

Passar vel með

Hleð inn síðu...