





Imprinting Hydrogel Mask
Andlitsmaski sem róar húðina og veitir mikinn og djúpvirkan raka. Sérhannaður til að hámarka virkni BIOEFFECT seruma.
Eiginleikar og áhrif
Djúpverkandi og rakagefandi andlitsmaski sem hámarkar virkni BIOEFFECT seruma.
Auktu enn frekar á virkni BIOEFFECT seruma með þessum tvískipta djúpvirkandi og nærandi andlitsmaska. Gelmaskinn inniheldur hýalúronsýru og glýserín sem veita djúpan raka og efla hæfni húðarinnar til að viðhalda raka. Öflugur rakagjafi sem mýkir, sléttir og þéttir húðina. Andlitsmaskinn er vatnsleysanlegur og fyrir vikið er maskinn að fullu niðurbrjótanlegur.
BIOEFFECT EGF serum hafa mesta virkni í röku umhverfi. Þeim mun lengur sem yfirborð húðarinnar helst rakt, því meiri verða áhrifin. Þegar Imprinting Hydrogel andlitsmaskinn er notaður með BIOEFFECT serumum skapast kjöraðstæður fyrir virkni þeirra. Þessi einstaki andlitsmaski er frábær viðbót við reglubundna húðrútínu og mælt með að nota hann 1-2 skipti í viku.
- Tveggja laga andlitsmaski sem er einfaldur í notkun
- Djúpverkandi og endurnærandi rakagjafi
- Örvar varðveislu raka í húðinni
- Hámarkar virkni EGF seruma
- Kælandi og róandi gelmaski
- Vatnsleysanlegur og niðurbrjótanlegur
- Hentar öllum húðgerðum
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 1: 30 g / 0.88 fl.oz. 6: 6x30 g / 6.35 fl.oz
Lykilinnihaldsefni
Hýalúronsýra — Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Glýserín — Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Upplýsingar
BIOEFFECT® IMPRINTING HYDROGEL MASK
BIOEFFECT® Imprinting Hydrogel Mask veitir húðinni mikinn raka. Maskinn er sérstaklega hannaður til að hámarka áhrif EGF í BIOEFFECT serumum og inniheldur aðeins efni sem trufla ekki virkni frumuvaka.
• Eykur raka og frískar upp á húðina
• Hámarkar virkni BIOEFFECT seruma
• Eykur áhrif EGF
• Án alkóhóls, olíu og ilmefna
Notkunarleiðbeiningar: Berið BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnið maskann varlega, fjarlægið gagnsæju filmuna og leggið maskann á andlitið, með gelhliðina að húðinni. Við mælum með að setja neðri hluta maskans fyrst á andlitið. Fjarlægið hvítu filmuna. Leyfið maskanum að vera á andlitinu í 15 mínútur. Fjarlægið og nuddið því serumi sem eftir situr inn í húðina. Mælt er með því að nota maskann 2-3 sinnum í viku til að ná hámarksárangri.
BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Hafir þú glímt við húðsjúkdóma skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú notar BIOEFFECT Imprinting Hydrogel Mask.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Notkun
Berðu BIOEFFECT serum að eigin vali á húðina. Opnaðu maskann varlega, fjarlægðu hvítu filmuna og leggðu maskann á andlitið. Við mælum með að setja neðri hluta maskans fyrst á andlitið. Leyfðu maskanum að vera á andlitinu í 15-20 mínútur. Fjarlægðu maskann og nuddaðu þvi sem eftir situr á andlitinu inn í húðina.