EGF Power Serum & Eye Cream
Þessi öfluga tvenna veitir árangursríka hjálp gegn öldrun húðarinnar.
EGF Power Serum er afar öflug húðvara sem er sérstaklega þróuð til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. EGF Power Serum er framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna.
Nýja EGF Power Eye augnkremið vinnur á margvíslegum öldrunareinkennum á viðkvæmu húðinni undir og í kringum augun. Þetta byltingarkennda augnkrem dregur sýnilega úr fínum línum og hrukkum, og veitir um leið áhrifaríka vörn gegn dökkum baugum, bólgum og þurrki.
Nú býðst þessi öfluga EGF Power tvenna á 15% lægra verði.
Fullt verð: 35.480 kr.
Þitt verð: 30.158 kr
Eiginleikar og áhrif
EGF Power Serum eru öflugir húðdropar með enn meiri virkni og sérstaklega þróaðir fyrir eldri/þroskaða húð. EGF Power Serum hjálpar til við að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur og fínar línur, litamisfellur og þurrk. Öflug og framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra innihaldsefna.
EGF Power Eye Cream er sérstaklega þróað til að minnka ásýnd fínna lína og hrukka, bauga, þrota og þurrks á augnsvæðinu. EGF Power Eye Cream er öflug blanda sex virkra innihaldsefna og er sérstaklega þróuð fyrir þroskaða húð og til að veita sýnilegan árangur. Kremið veitir djúpan og langvarandi raka, þéttir og sléttir augnsvæðið.
EGF Power Serum
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur teygjanleika og þéttleika, húðin virðist stinnari
- Dregur úr litamisfellum af völdum sólarljóss og UV-geislunar
- Eflir virkni ysta varnarlags húðarinnar og eflir rakabindingu
- Bætir áferð húðar, húðin virðist sléttari og húðlitur jafnari
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þurri eða þroskaðri húð
- Aðeins 12 innihaldsefni
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikons og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml.
EGF Power Eye Cream
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Eykur þéttleika og húðin virðist stinnari
- Dregur úr baugum, þrota, þreytumerkjum og slappleika
- Jafnar húðlit og dregur úr litamisfellum
- Eykur rakabindingu
- Hentar öllum húðgerðum, sérstaklega þroskaðri og þurri húð
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena, sílikon-efna og glútens
- Prófað af húð- og augnlæknum
Stærð: 15 ml.
Lykilinnihaldsefni
EGF: Öflugt lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðarinnar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur. EGF hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnka hrukkur og fínar línur, þéttir og sléttir húðina. BIOEFFECT EGF er eftirgerð af vaxtarþættinum EGF sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. BIOEFFECT EGF er framleitt með aðferðum plöntu-líftækni og ræktað í byggi í gróðurhúsi á Íslandi.
KGF: Er boðskiptaprótín (vaxtarþáttur) sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, eflir ysta varnarlag húðarinnar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF í húðvörum BIOEFFECT er framleitt með aðferðum plöntu-líftækni í byggi og er ætlað að styðja við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það stuðlar að bjartari og jafnari ásýnd og dregur úr litamisfellum. NAG hefur andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu (e. structural integrity) húðarinnar, viðheldur teygjanleika og vinnur á þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.
Koffín: Dregur úr þrota og baugum á meðan það bætir smáæðablóðrásina og nærir augnsvæðið. Býr yfir andoxunarvirkni sem hjálpar til við að vernda húðina fyrir UV-geislum og skemmdum.
Bakúsíól: Náttúrulegt innihaldsefni sem býr yfir sambærilegri virkni og retínól. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka og jafnar húðlit og áferð án þess að erta húðina.
Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3-vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.
Seramíð: Eykur raka í húðinni svo hún verður þéttari ásýndar. Seramíð hjálpar til við að lágmarka þrota og að baugar myndist með því að endurheimta raka og þéttleika augnsvæðisins.
Bygg ekstrakt (Barley seed extract): Öflugt innihaldsefni ríkt af peptíðum og andoxunarefnum. Minnkar ásýnd fínna lína og hrukka.
Innihaldsefnalisti
EGF Power Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
EGF Power Eye Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, CETYL ALCOHOL, GLYCERIN, SORBITOL, CAFFEINE, OENOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, GLYCERYL STEARATE SE, PROPYLENE GLYCOL, CETEARYL OLIVATE, SORBITAN OLIVATE, NIACINAMIDE, SQUALANE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CITRATE, BAKUCHIOL, CITRUS LIMON (LEMON) PEEL POWDER, SCLEROTIUM GUM, CITRUS AURANTIFOLIA (LIME) PEEL POWDER, SORBITAN OLEATE, TOCOPHEROL, ETHYLHEXYLGLYCERIN, SODIUM HYALURONATE, XANTHAN GUM, CERAMIDE NG, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Staðfestur árangur
Klínískar rannsóknir, sem framkvæmdar voru af vísindateymi BIOEFFECT, leiddu í ljós að hið nýja EGF Power Eye Cream dregur sýnilega úr ásýnd fínna lína og hrukka auk þess sem það hjálpar til við að auka rakastig húðarinnar, bæta þéttleika og teygjanleika. Þannig verður húðin þéttari, sléttari og þrýstnari með reglulegri notkun þess.
Klínísk rannsókn á 50 þátttakendum með notkun Derm Lab og VISIA Skin Analysis System. Þátttakendur notuðu BIOEFFECT EGF Power Eye Cream tvisvar á dag í þrjá mánuði.
- Allt að 64%minnkun á ásýnd fínna lína og hrukka
- Allt að 130%aukning á raka húðar
- Allt að 165%aukning á þéttleika húðar
- Allt að 79% aukning á þykkt húðar
- Allt að 91%aukning á teygjanleika húðar
Hreinar húðvörur
Notkun
Skref 1: Berðu 2-4 dropa af EGF Power Serum á hreina húð og dreifðu mjúklega með hringlaga hreyfingum upp á við.
Skref 2: Berðu EGF Power augnkremið á með því að dreifa því mjúklega með fingurgómunum á svæðið undir augum. Byrjaðu við augnkrók, haltu áfram undir auganu og upp á augnlokin þar til húðin er þurr viðkomu.