Power húðrútína fyrir eldri húð
Fullkomin þrenna sem vinnur á hrukkum og fínum línum, þurrki og litabreytingum í húð. Power húðvörur BIOEFFECT eru kraftmiklar, djúpvirkandi og sérstaklega þróaðar fyrir eldri / þroskaða húð. Við mælum með að nota EGF Power Serum kvölds- og morgna, og bera síðan EGF Power andlitskremið yfir serumið. Andlitsmaskana, Imprinting Hydrogel Masks, er síðan gott að nota tvisvar til þrisvar í viku en í pakkanum eru 6 maskar. Fullt verð: 51.930 kr.
Vörur
EGF Power Serum er sérstaklega þróað til að styrkja ysta varnarlag húðarinnar, jafna húðlit og vinna á sjáanlegum öldrunarmerkjum á borð við hrukkur, litamisfellur og þurrk. Öflug og framsækin formúla aðeins 12 hreinna og virkra efna, m.a. EGF úrbyggi, KGF úrbyggi – boðskipta prótín sem styrkir varnarlag húðarinnar – ásamt hýalúronsýru og NAG.
EGF Power Cream er byltingarkennt andlitskrem. Það er bæði kraftmikið og djúpvirkandi, vinnur á fínum línum, jafnar lit og áferð og eykur þéttleika húðarinnar. EGF Power Cream inniheldur úrval virkra og sérvalinna efna úr plönturíkinu. Það inniheldur meðal annars lykilhráefnið okkar, EGF, auk betaglúkans sem við framleiðum á sjálfbæran hátt úr byggplöntum.
Imprinting Hydrogel Mask eru tvískiptir andlitsmaskar sem róar húðina og veitir mikinn og djúpvirkan raka. Gelmaskinn er sérþróaður til að hámarka virkni EGF seruma og eykur þannig enn frekar við árangurinn sem hlýst af EGF Power Serum.
- Dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Þéttir húðina, húðin virðist stinnar
- Dregur úr ásýnd svitahola
- Jafnar áferð og dregur úr litabreytingum
- Eykur raka og styrkir ysta varnarlag húðar
- Sléttir húðina og jafnar húðlit
- Hentar öllum húðgerðum, þó sérstaklega eldri og þurri húð
- Án ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 15 ml., 50 ml. og 6x30 g.
Lykilinnihaldsefni
BIOEFFECT EGF: Hjálpar til við að örva náttúrulega kollagenframleiðslu og minnkar því sýnilega fínar línur og hrukkur og þéttir og sléttir húðina. EGF er lykilinnihaldsefni í baráttunni gegn öldrun húðar þar sem það er rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur.
Squalane: Mýkjandi, rakabindandi og endurnærandi efni sem hefur styrkjandi áhrif á ysta varnarlag húðarinnar og getur þar með eflt náttúrulega hæfni hennar til að viðhalda raka. Squalane er andoxandi efni sem róar húðina og dregur úr sýnilegum merkjum þrota.
Betaglúkan úr byggi: Betaglúkan róar og nærir húðina og styrkir varnir hennar. Það viðheldur raka, vinnur gegn hrukkumyndun og verndar húðina fyrir skaðlegum geislum. Rannsóknir hafa auk þess sýnt að betaglúkan sem framleitt er úr byggi er með öfluga andoxunarvörn.
KGF: Boðskiptaprótín sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni, hefur eflandi áhrif á ysta varnarlag hennar og viðheldur heilbrigðri ásýnd. KGF úr byggi styður við náttúrulega viðgerðarhæfni húðar og hefur verndandi áhrif gegn ýmiss konar ytra áreiti, þ.m.t. af geislun, umhverfisáhrifum og efnaáhrifum.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
N-Acetyl Glucosamine (NAG): Vegan form af amínóeinsykru sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni og er staðsett á milli húðfruma. Sýnt hefur verið fram á að NAG styður við náttúrulega framleiðslu hýalúronsýru í húðinni. Rannsóknir hafa einnig sýnt að það stuðlar að bjartari og jafnari ásýnd og dregur úr litamisfellum. NAG hefur andoxandi eiginleika, styður við heilbrigða uppbyggingu (e. structural integrity) húðarinnar, viðheldur teygjanleika og vinnur á þurrki með því að draga úr vökvatapi og efla rakabindingu.
Órídónín: Nýtt og árangursríkt efni í húðvöruframleiðslu. Órídónín er unnið úr jurtaþykkni og er þekkt fyrir græðandi eiginleika. Það vinnur auk þess gegn skaðlegum áhrifum sindurefna sem eru talin stuðla að sýnilegum merkjum öldrunar. Líkt og EGF úr byggi getur órídónín tengst húðfrumum og sent þeim skilaboð. Í sameiningu vinna þessi öflugu efni gegn fínum línum og slappri húð.
Níasínamíð: Einnig þekkt sem B3 vítamín. Bætir áferð, jafnar húðlit og eykur ljóma auk þess að lágmarka ásýnd fínna lína.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmar
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Full Ingredient Lists
EGF Power Serum: GLYCERIN, WATER (AQUA), SODIUM CITRATE, ACETYL GLUCOSAMINE (NAG), ISOPENTYLDIOL, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, SODIUM HYALURONATE, CITRIC ACID, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1), KGF (BARLEY SH-POLYPEPTIDE-3)
EGF Power Cream: WATER (AQUA), BUTYROSPERMUM PARKII (SHEA) BUTTER, C12-20 ACID PEG-8 ESTER, BUTYLENE GLYCOL, ONEOTHERA BIENNIS (EVENING PRIMROSE) OIL, CETYL ALCOHOL, SQUALANE, SORBITOL, HYDROGENATED POLYISOBUTENE, NIACINAMIDE, TOCOPHEROL, SODIUM HYALURONATE, BETA GLUCAN, ORIDONIN, PHENOXYETHANOL, SORBITAN OLEATE, CARBOMER, XANTHAN GUM, ETHYLHEXYLGLYCERIN, POLYSORBATE 20, POTASSIUM HYDROXIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Imprinting Hydrogel Mask: WATER (AQUA), GLYCERIN, DIPROPYLENE GLYCOL, 1,2-HEXANEDIOL, CERATONIA SILIQUA (CAROB) GUM, CHONDRUS CRISPUS POWDER, CHONDRUS CRISPUS EXTRACT, SODIUM HYALURONATE, CELLULOSE GUM, SODIUM POLYACRYLATE, PHENOXYETHANOL, SUCROSE, HYDROGENATED POLYDECENE, POTASSIUM CHLORIDE, TRIDECETH-6, DISODIUM EDTA
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Kjörið fyrir:
Fínar línur og hrukkur
Fyrstu ummerki um öldrun húðarinnar birtast gjarnan sem fínar línur á yfirborði hennar. Í fyrstu eru þær stuttar og grunnar og oft er erfitt að koma auga á þær. Fínar línur liggja í yfirborði húðarinnar og því er einfaldara að meðhöndla þær en dýpri hrukkur. Hrukkur geta myndast þegar fínar línur eru ekki meðhöndlaðar og fara að dýpka. Með því að nota serum eða krem með BIOEFFECT EGF er hægt að auka raka og örva náttúrulega kollagenframleiðslu húðarinnar, sem getur reynst afar vel til að halda fínum línum og hrukkum í skefjum.
Húð sem hefur tapað þéttleika
Þegar húðin er ung framleiðir hún kollagen og elastín. Þetta náttúrulega ferli viðheldur teygjanleika húðarinnar og sér til þess að hún haldi lögun sinni í stað þess verða slöpp og fara að síga. Með hækkandi aldri og áreiti umhverfisþátta á borð við UV-geislun, mengun eða streitu fer að draga úr framleiðslu kollagens og elastíns. Fyrir vikið tapar húðin þéttleika. Húðvörur sem innihalda EGF sem við framleiðum úr byggi örva náttúrulega framleiðslu kollagens og elastíns og geta þannig stuðlað að auknum þéttleika húðarinnar.
Húð sem er þreytuleg ásýndar
Húðin getur orðið þreytuleg ásýndar (oft kallað skin dullness) og er þá átt við húð sem virðist litlaus, skorta ljóma og jafnvel gróf. Með hækkandi aldri dregur úr náttúrulegri viðgerðar- og endurnýjunarhæfni húðarinnar og verulega hægit á frumuendurnýjun. Í kjölfarið geta dauðar húðfrumur farið að safnast á yfirborði húðarinnar og hulið náttúrulegan ljóma og lit. Með því að nota endurnærandi húðvörur, á borð við EGF serumin okkar, má örva þessa viðgerðarhæfni húðarinnar og endurheimta bæði lífleika og ljóma.
Þurra húð
Flest þekkjum við þau neikvæðu áhrif sem þurrkur getur haft á líkamann. Staðreyndin er sú að þurrkur hefur ekki síður áhrif á húðina og húðheilsu. Þurr húð stafar yfirleitt af því að húðin tapar vökva hraðar en hún getur dregið hann til sín og viðhaldið honum. Með hækkandi aldri verðum við sífellt líklegri til að upplifa þurrk í húð. Ein besta meðferðin er notkun húðvara á borð við nærandi serum eða krem sem innihalda mild en áhrifarík efni sem veita húðinni raka og efla getu hennar til að viðhalda honum.