Ásta Kristjánsdóttir þykir einn færasti ljósmyndari landsins og hefur hún myndað fyrir forsíður tískutímarita um allan heim. Hún starfaði lengi vel sem fyrirsæta og er einn af stofnendum fyrirsætuskrifstofunnar Eskimó en nú rekur hún ljósmyndastúdíóið Studio8. Ásta leggur mikla áherslu á að lifa heilbrigðum lífstíl og að hugsa vel um húðina, sem er stærsta líffæri okkar. Einnig segir hún að heilbrigður lífstíll og andlegt jafnvægi hafi góð og jákvæð áhrif á húðina.
„30 Day Treatment frá BIOEFFECT er vara sem mig hefur lengi langað að prufa. Sérstaklega vegna þess að þetta er öflug meðferð sem stendur yfir í 30 daga - mér finnst það flott ‘concept’ hjá BIOEFFECT því ég trúi því að húðin þurfi tíma og endurtekna meðferð til að byggja sig upp þannig að virkilega góður árangur sjáist. Góðir hlutir gerast hægt - ekki á einu augnabliki eins og í Photoshop.
Samhliða 30 daga meðferðinni ætla ég að vera dugleg að nota andlitsmaskana frá BIOEFFECT en ég hef heyrt að þeir hafi góða virkni.
Ég hugsa vel um stærsta líffæri líkamans og almennt um heilsuna (80-20 reglan) enda hefur heilbrigður lífstíll og andlegt jafnvægi mikil áhrif á húðina. Ég er virkilega spennt að sjá árangurinn og janúar er góður tími til að byrja nýtt ár af krafti og endurnæra húð, líkama og sál."