EGF Day Serum
Létt og olíulaust EGF serum með gelkennda áferð sem er sérstaklega hannað til notkunar yfir daginn. Það inniheldur hrein og náttúruleg efni sem vinna á fínum línum, auka raka og viðhalda unglegri ásýnd húðarinnar. Lykilhráefnið er BIOEFFECT EGF úr byggi — endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur sem örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og heldur húðinni sléttri og heilbrigðri.
Eiginleikar og áhrif
Létt og áhrifaríkt EGF serum sem heldur húðinni vel nærðri í amstri dagsins
BIOEFFECT EGF Day Serum er rakagefandi gelformúla sem er sérstaklega hönnuð til notkunar yfir daginn. Þetta silkimjúka serum er olíulaust og skilur ekki eftir klístrað lag eða filmu á yfirborði húðarinnar. EGF Day Serum dregur úr ásýnd fínna lína, eykur þéttleika og raka og vinnur þannig gegn sjáanlegum öldrunaráhrifum. Lykilhráefnið er EGF prótín úr byggi — endurnærandi og rakabindandi vaxtarþáttur. Upplifðu hámarksárangur með hreinni húðvöru sem inniheldur aðeins 10 náttúrulega virk efni.
- Eykur og viðheldur raka í húðinni
- Rannsóknir sýna að varan dregur úr ásýnd fínna lína og hrukka
- Jafnar áferð og húðlit
- Silkimjúk áferð sem er fullkominn grunnur undir farða
- Hentar öllum húðgerðum
- Aðeins 10 innihaldsefni
- Án olíu, ilmefna, alkóhóls, parabena og glútens
- Prófað af húðlæknum
Stærð: 30 ml.
Lykilinnihaldsefni
BIOEFFECT EGF (Epidermal Growth Factor): Rakabindandi og endurnærandi vaxtarþáttur sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. BIOEFFECT EGF hjálpar til við að örvar náttúrulega kollagenframleiðslu og viðheldur sléttri og heilbrigðri ásýnd húðarinnar.
Hýalúronsýra: Efni sem fyrirfinnst náttúrulega í húðinni. Hýalúronsýra gegnir mikilvægu hlutverki við að draga til sín og viðhalda raka auk þess að þétta og jafna húðina.
Glýserín: Kraftmikill rakagjafi sem er unninn úr plöntuafurðum. Glýserín dregur til sín raka auk þess að jafna ásýnd og slétta yfirborð húðarinnar.
Íslenskt vatn: Hreint, íslenskt vatn sem hefur síast í gegnum aldagömul hraunlög. Fyrir vikið eru ertandi steinefni á borð við kalk og magnesíum í algjöru lágmarki.
Innihaldsefnalisti
WATER (AQUA), PROPYLENE GLYCOL, GLYCERIN, SORBITOL, CARBOMER, SODIUM HYALURONATE, PHENOXYETHANOL, SODIUM CHLORIDE, BARLEY (HORDEUM VULGARE) SEED EXTRACT, EGF (BARLEY SH-OLIGOPEPTIDE-1)
Notist aðeins útvortis og samkvæmt leiðbeiningum. Hafið samband við húðlækni ef varan veldur ertingu.
Staðfestur árangur
Samkvæmt sjálfstæðri innanhússrannsókn þar sem árangur var mældur með VISIA Skin Analysis kerfinu og þátttakendur notuðu EGF Day Serum tvisvar á dag í þrjá mánuði.
- Allt að 144%aukning á raka húðar
- Allt að 49%minnkun á ásýnd hrukka og fínna lína
Upplýsingar
BIOEFFECT® EGF DAY SERUM
BIOEFFECT® EGF Day Serum er kröftug húðvara sem vinnur gegn öldrun og er sérstaklega hönnuð til notkunar á daginn. Dregur úr hrukkum og fínum línum, hámarkar ljóma og kemur jafnvægi á rakastig húðar auk þess að gefa mjúka áferð sem er tilvalinn grunnur undir farða.
- Dregur úr hrukkumyndun
- Hámarkar ljóma og litarhaft
- Stinnir og þéttir húðina
- Góður grunnur undir farða
Notkunarleiðbeiningar: Berið 1-2 pumpur á hreina húð í andliti og á hálsi að morgni. Gefið húðinni 3-5 mínútur til að draga serumið í sig áður en farði eða sólarvörn eru borin á.
BIOEFFECT EGF Day Serum hentar öllum húðgerðum og inniheldur ekki olíu, alkóhól og ilmefni. Fyrir mjög viðkvæma húð er ráðlagt að prófa vöruna fyrst með því að bera á lítið svæði í þrjá daga áður en hún er notuð á andlitið. Ef þú hefur glímt við húðsjúkdóma, vinsamlegast leitaðu upplýsinga hjá lækni áður en þú notar BIOEFFECT EGF Day Serum.
Ofnæmisupplýsingar: Varan inniheldur bygg.
Forðist að varan berist í augu. Ef það gerist skal skola augu vandlega með vatni. Geymist þar sem börn ná ekki til. Eingöngu til notkunar útvortis. Geymist við stofuhita á skuggsælum stað.
Hreinar húðvörur
Notkun
Pumpið 1-2 í lófa og berið á hreina og þurra húð á andliti, hálsi og bringu. Bíðið í 3-5 mínútur áður en aðrar vörur á borð við rakakrem, sólarvörn eða farða eru settar á húðina.